07.11.2008 11:37:41 / biggig
Það er aldeilis sem maður er duglegur að blogga. Ég kenni facebook alfarið um.
Já, það kreppir að hjá mörgum, það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni. Maður er þó allavega það "heppinn" að vera ríkisstarfsmaður og ætti því að vera með örugga vinnu. Þetta er að vísu ekki besti tíminn til að vera í fæðingarorlofi og vera á broti af fullum launum eins og Sara er núna. En við tökum bara Íslendinginn á þetta og segjum "þetta reddast".
Það er búið að vera mikið rætt um óheiðarleika og svoleiðis hjá ýmsum síðustu vikurnar. Mig langar aðeins til að minnast á verslunarkeðju sem allir lofuðu þegar hún kom til landsins og menn sögðu að loksins væri komin samkeppni. Verslunin sem um ræðir er ToysRus. En Adam var ekki lengi í paradís því þeir voru ekki lengi að kaffæra alla samkeppni. Nú eru þeir nánast þeir einu á markaðinum og verðið eftir því. Þetta eru allt smávaxin dýr af hestakyni.
Og talandi um álög(ur) á barnafólk. Ég skil ekki hvers vegna skattar á barnavörur eru ekki lækkaðar. Það myndi hjálpa mörgum. Bleyjuverð og fleira er náttúrulega bara í ruglinu.
Annað sem er svolítið merkilegt og ég á erfitt að skilja í okkar fjölskylduvæna landi eru baranbæturnar. Þær eru í fyrsta lagi allt of lágar og svo skil ég ekki að þær skuli fara lækkandi eftir því sem barnið eldist. Það er ekki eins og það verði ódýrara að fæða það og klæða og ekki fer það út á vinnumarkaðinn fimm ára. Hvaða rugl er þetta eiginlega.
Æji fyrirgefið þennan bölmóð í mér. Við eigum víst öll að vera jákvæð og svona. Ég vinn bara í þessu þegar í fer á þing.
»
08.09.2008 21:47:51 / biggig
.......frekar myglaður og Sara í sófanum að horfa á So you think you can dance. Ég er búinn að vera inni í allan dag með Karen þar sem hún er lasin. Hún er búin að vera með hita og í gær fékk hún svo barkabólgu þannig að hún er búin að vera frekar lítil í sér og gott að hafa pabba mikið hjá sér. Svona er þetta.
Annars er búið að vera nóg að gera. Ég kláraði dagvaktartörn á föstudaginn og tók svo aukanæturvakt um helgina. Nú er ég s.s. í fríi fram á miðvikudagskvöld en þá fer ég á næturvaktartörn. Svo er stefnan tekin norður yfir heiðar á þriðjudaginn eftir viku. Gaman að því. Það er líka gaman að segja frá því að það var barnablessun fyrir Theodór Ísak, son Theu dóttur Tedda á sunnudaginn og hlotnaðist mér sá heiður að blessa drenginn. Fyrir þá sem það ekki vita að þá er hvítasunnukirkjan (og mjög mjög margar aðrar kirkjur) ekki með barnanskírn en þess í stað barnablessun. Það er svo einstaklingurinn sjálfur sem velur það hvort að hann vilji taka skírn seinna meir. Bæði gott og blessað en svona er þetta bara hjá okkur.
Sara kynnti mig fyrir fyrirbæri um daginn sem er kallað "facebook". Merkilegt fyrirbæri. Ég skil sumt í þessum fésbókarheimi en annað alls ekki. Það kemur kannski...
»
29.08.2008 09:16:42 / biggig
Þá er haustið formlega búið að stimpla sig inn með sinni fyrstu slagveðurslægð. Ég ætla rétt að vona að þetta haust verði ekki eins og það síðasta, þegar það byrjaði að rigna um miðjan ágúst og það rigndi fram yfir áramót. Annars virðast árstíðir vera frekar afstætt hugtak hér á Íslandinu góða þar sem að haustið er ótvíræður sigurvegari. En talandi um sigurvegara......eða allavega næstum því sigurvegara. Verð ég ekki eitthvað að minnast á handboltalandsliðið eins og alltaf. NEI. Það er komið nóg að því. Flott hjá þeim og allt það og frábær árangur en læv gós on.
Og talandi um það. Lífið gengur sinn vanagang hér hjá okkur í Firðinum. Karen er alsæl í leikskólanum og Ásgeir dafnar vel. Hann er að vísu talsvert kvefaður kallinn sem er frekar erfitt fyrir svona lítinn kropp sem kann lítið að takast á við það. En það sagði okkur góður maður að þetta væri það sem hann þyrfti að lifa mikið við í vetur þar sem þetta er fyrsta árið hennar Karenar í leikskóla og pestar yrðu þá reglulegur gestur á heimilinu. Við sjáum hvað setur.
Ég ætla ekki að lofa því að vera duglegri að blogga á næstunni en kannski. Það er hugsanlega partur af haustgírnum.
»
02.08.2008 17:46:37 / biggig
Já kæru vinir, þá er maður bara orðinn tveggja barna faðir. Kl. 03:38 þann 30. júlí fæddist þessi líka glæsilegi drengur og hefur hann fengið nafnið Ásgeir Örn. Hann var aðeins stærri en systir sín eða 18 merkur og 55 cm. Mikil gleði.
Netið liggur þvi miður niðri á heimilinu þar sem TAL er gjörsamlega að klúðra málunum (nánar síðar) en um leið og það lagast, vonandi strax eftir helgi, munu koma inn myndir á barnalandsíðuna.
»
07.07.2008 22:21:46 / biggig
Mikið rosalega er ég búinn að vera duglegur að blogga. Satt að segja er búið að vera þokkalega mikið að gera upp á síðkastið. Ég er náttúrulega kominn aftur á vaktir í nýju/gömlu vinnunni og svo er mikið að gerast í Mózaik og svo var Héðinn að gifta sig um helgina og það var allskonar undirbúningur fyrir það þar sem að ég sá um veislustjórn og svo minnið hans með Sindra og Birki. Þeim litla frítíma sem ég hef því haft upp á síðkastið hefur því verið vel varið í faðmi fjölskyldunnar sem jú, fer senn stækkandi. Nú er það bara biðin eftir prinsinum á heimilið en hann er væntanlegur á allra næstu vikum. Það er gaman að vera til.
»
30.05.2008 14:45:10 / biggig
Akkurat núna eru síðustu klukkutímarnir mínir hjá Toyota, best að stelast til að blogga smá. Svo er það bara gatan á mánudaginn.
Í hristingnum í gær rifjaðist upp fyrir manni skjáfltinn á 17. júní 2000. Ég var þá staddur í Fljótshlíðinni nokkrum kílometrum frá upptökunum og það var nokkuð geggjað. Núna bætist 29. maí við „hvar varst þú“ spurningalistann.
Sýslumaðurinn á Selfossi hefur ekki vikið frá Ingólfsfjalli frá því í gær. Hann mætir alltaf á Roling Stones, enda aðdáandi númer eitt eins og flestir vita.
»
27.05.2008 22:43:38 / biggig
Vildi bara láta vita að ég væri enn á lífi. Er að klára síðustu dagana hjá Toyota og byrja í löggunni á mánudaginn. Spennandi að byrja aftur á vöktum. Hér á bæ eru allir bara hressir og (ó)frískir. Það er ótrúlega stutt í að litli prinsinn komi í heiminn. Mikil spenna. Mikið ótrúlega er ég lánsamur maður. />
»
30.04.2008 13:22:39 / biggig
Ég skrapp norður til Akureyrar í gær í þeim tilgangi að kveðja Boga Pétursson, hetju og góðan vin til margra ára. Bogi var einstakur maður sem auðvelt var að líta upp til og taka til fyrirmyndar. Ég kynntist boga fyrst þegar ég var lítill polli á Ástjörn og lágu leiðir okkar oft saman eftir það, í gegnum yngra skátastarf, í Gagganum þar sem hann var gangavörður þegar ég var þar, í unglingastarfinu á Sjónarhæð og svo að sjálfsögðu á Ástjörn,Þar sem ég var fyrst sem dvalarbarn og svo seinna sem starfsmaður. Hjarta Boga sló svo sannarlega í takt við hjarta Guðs og það eru ófá sáðkornin sem hann Bogi hefur sáð í hjörtu hundruði barna og unglinga bæði með Orði Guðs, lífi sínu og kærleika. „Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá“. Bogi var óhræddur við að láta góðverkin tala og minningin um hann lifir áfram þó svo að hann sé farinn heim. En það besta er að fyrir verk Jesú á Krossinum lifir ekki bara minning Boga áfram heldur einnig hann sjálfur. Sjáumst seinna Bogi.
»
27.04.2008 18:56:34 / biggig
Hva, þú ert bara að lesa síðuna þrátt fyrir að ég sé búinn að vera svona latur við það að skrifa eitthvað. Takk fyrir að líta í heimsókn. Þú átt þá skilið að fá nokkrar fréttir af undirrituðum þar sem þú hefur tekið þér tíma af þinni æfi að líta hingað.Það er heill hellingur búinn að vera í gangi. M.a. er ég búinn að segja upp vinnunni minni hjá Toyota og ætla aftur að fara í lögguna. Það eru nokkrar ástæður fyrir því sem ég ætla svosem ekki að fara út í nánar en ég byrja semsagt í löggunni 2. júní og hlakka bara til. Ég er strax farinn að æfa mig.GAAAAAS!!
Svo er ég líka allt að gerast í nýju kirkjunni minni, Mozaik. Það er s.s. ný hvítasunnukirkjasem var bara stofnuð um páskana. Þar eru þeir Teddi og Halldór Lárusson stórvinir mínir prestar en þeir eru náttúrulega bara snillingar. Af hverju aðra hvítasunnukirkju á Reykjavíkursvæðinu? Spyr kannski einhver. Er Fíladelfía ekki nóg? Jah, af hverju eru svona margar þjókirkjur? Er Hallgrímskirkja ekki bara nóg? Nei, það er bara jákvætt að fá aðra hvítaskunnukirkju á svæðið. Það var hátíðarkvöldverður hjá okkur í gærkvöldi og þá var m.a. heimasíðan okkar opnuð.Líttu endilega í heimsókn á mozaik.is og mannaðu kálið.
»
03.04.2008 11:16:13 / biggig
Ok, umferðin hérna á höfuðborgarsvæðinu er venjulega þokkalega pirrandi og hvað þá núna þegar einhverjir trukkarar eru að flækjast fyrir. Og það sorglega við þessar leiðinlegu og stórhættulegu aðgerðir er það að þetta er að öllum líkindum algjörlega tilgangslaust. Ég er algjörlega sammála því að bensínið sé allt of dýrt en það kostar samt ekki meira hér en á hinum norðurlöndunum. Í Danmörku kostar lítrinn ca 165kr. og í Noregi 175kr. Mótmælin snúast víst líka um hvíldartímaákvæði en í þeim málum eru flestir sem vita eitthvað um málið sammála um að þeim ætti líka breyta. Vandamálið við það eru evrópureglur sem við verðum að fylgja og það er verið að reyna að fá undanþágu frá þeim. Og talandi um kjánalegar evrópureglur að þá er þetta bara byrjunin á þeirri holskeflu reglugerða sem mun hellast yfir okkur ef/þegar við göngum í evrópusambandið. En það kæmi mér s.s. verulega á óvart ef að ríkið mindi minnka álögur á bensín þannig að allavega á meðan það er svona hrikalega dýrt vil ég biðja þessa trukka um að fara frá svo við hin þurfum ekki að eyða þessum dýrmætu lítrum í óþarfa hangs á götum bæjarins.
»
02.04.2008 13:15:20 / biggig
Hvernig er það með þessa vörubílsstjóra, þurfa þeir aldrei að vinna?
Annars var ég að heyra að Kórea væri búið að sækja um að taka þátt í eurovision. Hérna er myndbandið af jútúb. Fylgist vel með trommaranum.
http://www.youtube.com/watch?v=OPWjNX4PBlI
»
14.03.2008 10:21:30 / biggig
Ísland á að vera öruggasta land í heimi en það virðast ekki vera til peningar til þess að halda uppi almennri löggæslu.
Íslendingar eiga að vera gáfaðasta þjóð í heimi en það er ekki til peningur til þess að borga kennurum fyrir það að uppfræða okkur og jefnvel ala okkur upp eins og sumir vilja.
Íslendingar eiga að vera heilbrigðasta þjóð í heimi en við höfum ekki efni á að borga þeim sem eiga að annast okkur og hjúkra ef við veikjumst.
Kannski er trúin á okkur svo mikil að menn halda að þar sem við brjótum ekki af okkur að þá sé löggan óþörf og þar sem við séum svo gáfuð að þá sé ekki hægt að kenna okkur neitt meira og að við séum svo heilbrigð að það þurfi ekki að hjúkra okkur. Ef menn hafa þessa trú þá eiga þessi mistök sér kannski eðlilegar skýringar. Ef ekki þá er eitthvað mikið að.
Þar sem að þjóðarbúið hefur sjaldan eða aldrei staðið jafn vel hljóta menn að geta farið að gera eitthvað í þessum málum. Það er ekki eins og það sé verið að biðja um að þetta verði nein hálaunastörf þau vilja bara fá það sem þau eiga skilið. Ef við getum ekki veitt þeim það verðum við aldrei best í heimi.
»
11.03.2008 11:12:22 / biggig
Það er merkileg auglýsing búin að vera í spilun á útvarpsstöðvunum. „Rafiðnaðarmenn, munið heimsenda atkvæðaseðla“. Ég vona að þeir setji X við nei.
»
29.02.2008 16:55:33 / biggig
Ég var að átta mig á því að ég er búinn að vera vinna í sjálfboðavinnu í allan dag. Það er bætt við heilum degi í mánuðinn og ég fæ ekkert fyrir það. Spáið samt í það hvað það er ömulegt að eiga afmæli 29. febrúar. Það tekur þá t.d. 72 ár að öðlast sjálfræði. En fáið ykkur allavega hlaupkall í tilefni dagsins.
Annars fórum við í sónar í gær sem var náttúrulega meiriháttar. Og við kíktum meira að segja í pakkann og it´s a b..............................................aby.
»
22.02.2008 09:47:25 / biggig
Fólk er eitthvað að pirrast yfir því að Birkir Jón Jónsson alþingismaður hafi verið að spila fjárhættuspil. Fólk má nú búast við einhverjum svona prakkarastrikum ef að það kýs unglinga á þing. Boys will be boys.
Svo voru þeir hjá HSÍ að hringja í mig og bjóða mér að þjálfa landsliðið í handbolta. Æji, ég nenni því ekki.
Og Össur skammastu þín, það er ljótt að stríða. Gísli hljóp hágrátandi heim til sín og er núna bara inni í herbreginu sínu að hlusta á eurovisionlög. Segðu fyrirgefðu!
Já, og talandi um eurovisionlög. Ekki kjósa júróbandið plííís. Ég fæ útbrot og andateppu í hvert skipti sem lagið er spilað. Að mínu mati er doktorinn málið en mér finnst samt líklegt að Barði fari út með egóbandið á sterum. Ekki að þetta skipti nokkru máli.
»
Síður:
1 2 3 ...
19